
Olís er eitt af stærri verslunar- og þjónustufyrirtækjum landsins og rekur yfir 65 útsölustaði á landinu öllu. Fyrirtækið á sér langa sögu sem er samofin þróun íslensks samfélags í næstum 100 ár en Olís var stofnað 3. Október 1927. Í dag starfa á fjórða hundrað starfsmanna hjá Olís
Hlutverk Olís
Olís hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á eldsneyti og öðrum olíuvörum, auk sölu veitinga og ýmissa nauðsynjavara fyrir bílaeigendur. Auk þess sinnir Olís fjölþættri vörursölu og þjónustu gagnvart stórnotendum um land allt, m.a. sjávarútvegs-,verktaka- og flutningafyrirtækjum.
Leiðandi á sínu sviði
Það er stefna Olís að vera leiðandi fyrirtæki á Íslandi á sínu sviði hvað varðar hagkvæmni í rekstri, þjónustu við viðskiptavini, gæði vöruframboðs og ábyrgð gagnvart samfélaginu, þar sem sérstök áhersla er lögð á stuðning við umhverfismál, félagasamtök og íþróttastarfsemi. Olís leggur jafnframt áherslu á að vera eftirsóknaverður vinnustaður þar sem jafnrétti og starfsánægja eru höfðað leiðarljósi og hlaut félagið gullmerki Jafnréttirvogarinnar í fimmta sinn árið 2023
Gildi Olís
Gildi Olís eru framsækni, fagmennska og traust