Efnahagslegur ávinningur
Með því að tryggja efnahagslegan ávinning úr rekstri sínum stuðlar Olís að verðmætasköpun í samfélaginu. Markmiðið er að skapa sameiginlegt virði fyrir eigendur og mannauð fyrirtækisins, samfélagið og aðra hagsmunaaðila. Siðferðislegir viðskiptahættir eru í hávegum hafðir og keppt er að því að öll samskipti viðskiptavina við fyrirtækið séu þægileg og einföld.
Olís stundar ábyrgar fjárfestingar og velur samstarfsaðila og birgja sem deila grundvallarsjónarmiðum fyrirtækisins. Einungis er unnið með aðilum sem samræmast stefnu Olís um samfélagslega ábyrgð.