Samfélagsverkefni
Markmið Olís er að vera virkur þátttakandi í jákvæðri uppbyggingu í samfélaginu og á hverju ári styður fyrirtækið við góð málefni sem auðga og efla samfélagið. Má þar nefna framlög til mannúðarstarfs, landræktarverkefna, menningar og íþrótta.
Slysavarnarfélagið Landsbjörg: Frá 2012 hefur Olís verið einn aðalstyrktaraðili Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og gildir sá samningur til 2019. Í styrknum felst, fyrir utan beinan styrk, að eldsneytisverð til Landsbjargar er mun lægra auk þess sem haldnir eru sérstakir fjáröflunardagar þar sem hluti af sölu eldsneytis þann dag rennur til Landsbjargar. Með þessu vill Olís tryggja að björgunarsveitir landsins séu vel búnar til að aðstoða Íslendinga og erlenda ferðamenn sem eru á ferð um landið.
Píeta samtökin: Olís hóf samstarf við Píeta samtökin í byrjun árs 2018 en samtökin berjast gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Auglýsingaherferðin „Segðu það upphátt“ var sett í loftið í samstarfi við Olís-deildina í handbolta og Píeta til þess að vekja athygli á mikilvægi þess að tala opinskátt um líðan sína og að fólk sem glímir við vanlíðan leiti sér hjálpar.
Íþróttastarf: Einn helsti stuðningur Olís við íþróttir á Íslandi er samstarf Olís og HSÍ um efstu deildirnar í handbolta. Efsta deildin er kölluð Olís-deildin og önnur deildin Grill 66 deildin. Þá fá helstu félagslið á svæðum þar sem Olís er með útibú eða starfsstöð styrk frá fyrirtækinu og er lögð áhersla á uppbyggingu æskustarfs íþróttafélaganna.
Menningarstarf: Olís leggur ýmsum menningarmálum um land allt lið, má þar nefna stuðning við leikfélög, kvikmyndagerð og bæjarhátíðir og önnur menningartengd málefni.
Gefum og gleðjum: Gefum og gleðjum er fjáröflunarátak þar sem ákveðin samtök eða góðgerðarmálefni fá fimm krónur af hverjum seldum lítra þess dags. Meðal þeirra sem hafa notið góðs af Gefum og gleðjum eru Stígamót, Landsbjörg, Samhjálp, Geðhjálp og fjöldi annarra félaga.