10. des. 2024 | Fréttir/div>
Nýir skynjarar á dælum
Nú hafa verið settir upp litlir kassalaga skynjarar á allar eldsneytisdælur á stöðvum Olís og ÓB með skilaboðunum „Berðu símann að hér“. Hér er um að ræða nýja leið til að greiða fyrir eldsneyti með lykli eða nýju Olís– ÓB korti sem er tengt við nýtt Olís– ÓB app sem verður gefið út fljótlega.
Með nýja appinu er hægt að sækja sér starfrænt Olís– ÓB kort, tengja við greiðslukort í veski símans (wallet) og nota símann til að borga.
Við áréttum að þessi búnaður er ekki settur upp af óprúttnum aðilum heldur af strarfsmönnum Olís til að gera viðskiptavinum okkar kleift að borga með með nýju greiðsluleiðinni okkar.