Cargo White Oil 46 20 ltr
White Oil er gegnsæ smurolía sérsniðin til notkunar í matvælaiðnaði og gerð úr háhreinsuðum parafínskum olíum. Olían er framleidd fyrir matvælaiðnað og aðrar greinar þar sem miklar kröfur eru gerðar til hreinleika og hreinlætis. White Oil hefur breitt notkunarsvið og er bragð- og lyktarlaus. Dæmi um notkunarmöguleika eru: legur, vökvakerfi, gírkassar (sem ekki krefjast EP-smurefnis), þjöppur, dælur o.fl. Notkun: Legur, keðjur, lokar, dælur, gírkassar






